Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2008

Og til hvers ætti að ræða ESB?

Það er ekki eins og það þjóni hagsmunum Íslands að vera í ESB.

Ef menn geta horft framhjá fullyrðingum Eiríks Bergmanns, aðdáanda ESB #1, þá rennur upp fyrir fólki að það hefur enginn getað sett fram nein RÖK fyrir því að Ísland gangi í ESB.  Þegar gengið er á meðlimi ESB sértrúarsafnaðarins, þá byrja þeir auðvitað á sama söngnum, en að baki honum er ekkert annað en taugaveiklun og undarlega freudískur vilji til að afsala sér allri ábyrgð á sjálfum sér.

"Ef við göngum í ESB lækkar matvælaverð um marga tugi prósenta!" er algeng mantra ESB sinna.  Er það virkilega svo?  Af hverju ætti matvælaverð að lækka?  Jú, af því að tollar innan ESB eru svo miklu lægri og hagstæðari neytendum en hér á Íslandi.  Einmitt það, og síðan hvenær ráðum við ekki sjálf hvaða tollar og aðflutningsgjöld eru í gildi á Íslandi?  Ef á annað borð er vilji til að hafa lægri tolla og slíkt, af hverju ekki bara að lækka það sjálf, í stað þess að ganga í ESB og láta sambandið lækka það fyrir okkur?  Þetta er soldið eins og að ákveða að flytja til að komast í hreina íbúð, í stað þess einfaldlega að taka til.

"Ef við göngum í ESB fáum við evruna og svo miklu lægri vexti, og þá þurfa heimilin í landinu ekki að sligast undan háum vöxtum!" er annað vinsælt, sérstaklega nú um stundir.  Jahá... vissulega eru vextir lægri á evrusvæðinu, en fyrir því eru ástæður.  Háir vextir eru við lýði þegar mikill verðbólguþrýstingur er í hagkerfi, og verðbólguþrýstingur stafar af miklum hagvexti (yfirleitt).  Þessir aðilar gleyma (nú eða sleppa viljandi) að minnast á að vaxtastig hverju sinni er stýritæki seðlabanka.  Háir vextir eiga að LETJA eyðslu og HVETJA til sparnaðar, lágir vextir að HVETJA til eyðslu og LETJA sparnað.  Vextir eru verðmiði á peninga, og ef peningar eru dýrir ætti fólk frekar að selja peninga en kaupa (þ.e.a.s. spara frekar en fá lánað).  Hvar eru þrýstihópar sparifjáreigenda sem fagna háum vöxtum á Íslandi og 15% áhættulausum vöxtum á ári?  Vill þetta fólk hoppa yfir í evruna og fá 5% ávöxtun á sparifé sitt?

"Ef við göngum í ESB megum við gera ráð fyrir ca. 8% atvinnuleysi að jafnaði!" Er nokkuð sem heyrist líka oft.... nei, bíðið við, það heyrist aldrei.  En er engu að síður satt.  Innan ESB er mismikið atvinnuleysi, en að jafnaði 8% (t.d. í V-Evrópu).  Það jafngildir að um 16.000 vinnufærir einstaklingar væru án atvinnu hverju sinni á Íslandi.  Staðreynd.  Nema menn vilji trúa því sem leiðtogar sértrúarsafnaðarins hafa sagt, og að hér gildi einfaldlega ekki sömu hagfræðilögmál og annars staðar.

Lönd sem ganga vilja inn í Evrópska Myntbandalagið þurfa að halda fjárlagahalla innan ákveðinna marka, sem og verðbólgu (auk annars).  Ef vaxtaákvörðunarvaldið er fært út úr hagkerfinu til Brussel, þá hafa stjórnvöld bara eitt tæki til að halda verðbólgu niðri (og takist það ekki yrði landinu sparkað úr myntbandalaginu), og það er að stýra í gegnum atvinnuleysi.  Hætta framkvæmdum og gera verktaka atvinnulausa, draga úr heilbrigðisþjónustu og gera hjúkkur og sjúkraliða atvinnulaus. 

Jújú, í dag eru vextir háir og verðbólga mælist 11% á ársgrundvelli (ekki 28% eins og skussar í fjölmiðlum slá fram), en hér er ekki atvinnuleysi að neinu ráði.  Sem þýðir að við öll berum byrðarnar.  Það væri alveg hægt að lækka vexti og draga úr þenslu í þjóðfélaginu með því að segja upp fullt af fólki... láta fáa bera byrðarnar.  Það er líklegast það sem Guðni og Steingrímur vilja.  Lægri vexti á alla, en ca. 16,000 atvinnulausa í staðinn.  16,000 heimili án fyrirvinnu.

Já, göngum endilega í ESB og setjum 16,000 heimili í gjaldþrot.  Og tökum upp gjaldmiðil hvers vaxtastig hentar ekki hagsveiflum landsins.  Allt svo að einstaka kaffihúsakverúlantar geti fengið kósí djobb í Brussel við að skrifa langar skýrslur um nytsemi þess að staðla skilgreiningar á því hvað telst jógúrt og hvað ekki.


mbl.is Ráðherrar á rökstólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

9 mannréttinda"fulltrúar"?

9 mannréttindafulltrúar?  Er ekki verið að grínast?  Hver og einn er með, segjum, 500þ í laun á mánuði, brúttó, svo leggjast ofan á 40% launatengd gjöld, sem gerir 700þ á mánuði í heildarlaunakostnað per "fulltrúa", sinnum 9 = 6.3 milljónir á mánuði, x 12 sem gerir heilar 75.6 milljónir íslenskra króna á ári í BARA launakostnað vegna einhverra "mannréttindafulltrúa" sem hafa óskilgreint starfssvið og umfang!

Og þetta finnst Sóleyju barasta allt í lagi.  Ekkert mál að hafa 9 manns á launum við það að marka stefnu borgarinnar sem leiðandi í mannréttindamálum.  Auðvitað að hafa 9 manns á launum við að tryggja umsjón með aðgengi fatlaðra að byggingum borgarinnar, svona til viðbótar við alla aðra sem gera slíkt... svona út frá mannréttindalegu sjónarhorni.

Þarf nokkuð frekari sannana við að það er stórvarhugavert að hleypa Vinstri grænum í almannafé, fyrst þeim finnst þetta vera peningum vel varið? 


mbl.is Borgarstjóri segir yfirlýsingar Sóleyjar ekki réttar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brýn verkefni borgarinnar, að mati Sóleyjar Tómasdóttur

Sóley Tómasdóttir, fulltrúi Vinstri Grænna, telur upp eftirfarandi á bloggsíðu sinni sem brýn verkefni opinberrar stjórnsýslu:

"Þau nýju verkefni sem borgarstjórinn telur óþörf lúta m.a. að eftirfarandi:

  • Vinna gegn kynbundnu ofbeldi
  • Efla aðgengi innflytjenda að samfélaginu með áherslu á gagnkvæma aðlögun.
  • Átak í atvinnumálum fatlaðra hjá borginni.
  • Útrýma kynbundnum launamun hjá borginni.
  • Gera húsnæði borgarinnar aðgengilegt fyrir alla.
  • Vinna gegn staðalímyndum kynjanna, innflytjenda, fatlaðra og samkynhneigðra.
  • Hafa áhrif á erlendum vettvangi sem fyrirmyndarborg á sviði mannréttinda."

Tilefnið er það að núverandi borgarstjórn hefur ákveðið að skera niður ómarkviss og rándýr verkefni, sem virðast hafa haft það eitt að markmiði að ráða inn flokksgæðinga af vinstri væng stjórnmálanna sem eru nýútskrifaðir úr kynjafræðum.

En bíðum nú við.  Ef við gefum okkur að þessi málefni séu öll brýn, af hverju þarf að stofna sérsakt batterí fyrir marga milljónatugi á ári til þess að sjá um þau?

Sér ekki lögreglan um að taka á ofbeldi í samfélaginu, kynbundnu sem öðru?  Þarf kynjafræðing eða alþjóðafræðing til þess, svona til viðbótar við lögregluna?  Er ekki nær að lögreglan vinni gegn þessu ofbeldi sem öðru? 

Er skattpeningum okkar vel varið í að aðlaga innflytjendur að samfélagi okkar?  Er ekki best að þeir sjálfir sjái um það, fari á tungumálanámskeið og annað slíkt, fyrir sinn eigin pening, fyrst þeir taka á annað borð ákvörðun um að flytja hingað?  Hversu margir Íslendingar sem hafa flutt utan hafa fengið ríkisstyrki til að "aðlagast" samfélaginu þar sem þeir bjuggu?

Átak í atvinnumálum fatlaðra er nokkuð sem fjölmörg félagasamtök vinna að.  Þarf virkilega að bæta enn einni "skrifstofunni" við, bara svo hægt sé að búa til aðeins fleiri "verkefnastjóra" hjá borginni?

Væri nú ekki gott að sýna fram á að kynbundinn launamunur sé yfirhöfuð til?  Það hefur aldrei verið sýnt fram á að kynbundinn launamunur sé til staðar í stórum stíl, algeng aðferð til að "sanna" tilvist hans er að segja að karlar og konur séu með ólík laun þegar búið er að leiðrétta fyrir aldri, menntun, vinnutíma, og starfsheiti.  Allir aðrir þættir, s.s. eðli starfs, eðli starfsmannsins sjálfs,  starfsumhverfi, ábyrgð í starfi eru hunsaðir og flokkaðir sem "kynjabreyta".

Er það ekki á ábyrgð eignasviðs borgarinnar að sjá til þess að allir hafi aðgengi að byggingum borgarinnar?  Þarf mannréttindanefnd til þess?

Vinna gegn staðalímyndum?  Hvernig þá?  Til hvers?  Staðalímynd er hvernig fólk sér hópa eða einstaklinga, og er það ekki þeirra sjálfra að breyta því?  Mér finnst t.d. Vinstri Grænir vera hópur ábyrgðarlausra stjórnmálamanna sem krefjast ríkisforræðis og hatast út í einkaframtakið.  Á Mannréttindaskrifstofa að breyta því, eða er það á forræði Vinstri Grænna að sýna mér fram á að þeir séu ekki eins og ég upplifi þá?

Hafa áhrif á erlendum vettvangi sem fyrirmyndarborg á sviði mannréttinda?  Til hvers?  Erum við með eitthvað slæma ímynd fyrir sem höfuðborg mannréttindabrota og kúgunar?  Við höfum hingað til verið ansi mikið laus við slíka gagnrýni, en hver veit hvað gerist í framtíðinni ef Vinstri Grænir fá sínum vilja framgengt. 

 


Hvernig eflum við samkeppni og bætum kaupmátt?

Jú, með því að efla samkeppni og minnka ríkisumsvif.

Við getum t.d. stóreflt samkeppni á smásölumarkaði með því að fella niður tolla og aðflutningsgjöld; að hér séu allar vörur á kostnaðarverði erlendis frá að viðbættum virðisaukaskatti.  Þannig gæti verið efnt til mikillar samkeppni við verslanir, því almenningur gæti verslað í gegnum erlendar netverslanir svo að segja allan varning utan dagvöru með skamman líftíma.

Þegar síðan verslanir geta flutt inn óheft matvæli erlendis frá, t.d. kjöt og mjólkurafurðir, og selt á mun lægra verði í dag (þ.e.a.s. undið ofan af hinni gerræðislegu vinstristefnu af hverri Framsóknarmenn hafa gegnsýrt íslenskan landbúnað), og við búið við matvælaverð sem er sambærilegt því sem gerist og gengur erlendis.

Þegar landsmenn geta farið utan í "verslunarferðir" og komið heim með þann varning sem þeir kjósa til eigin nota án afskipta tollvarða, þá búum við við alvöru frelsi.

Það þarf ekki að ganga í ESB til að þetta gangi eftir, það þarf bara vilja hjá stjórnmálamönnum og þor, nokkuð sem enginn virðist eiga inni, því miður.

Við eflum líka hag almennings með því að lækka skatta og draga úr ríkisafskiptum, því það er löngu sannað (sama hvað Ögmundur Jónasson segir) að ríkið er alltaf með óhagkvæmasta reksturinn og nýtir fjármagnið mun verr en einkaaðilar.  Lækkum skatta, setjum menntakerfið í einkarekstur, sem og heilbrigðiskerfið. 

Og einkarekstur er, sama hvað Ögmundur Jónasson segir, ekki hið sama og einkavæðing - alveg merkilegt hvað fólk sem skilgreinir sig sem vel gefið á erfitt með að skilja muninn á þessu tvennu.

Síðan skal efla skilyrði einkaaðila til að koma inn á markað sem í dag er undir ríkiseinokun.  Ríkið á ekki að vera í virkjanagerð og rafmagnsframleiðslu.  Ríkið á ekki að vera einokunaðili á sölu áfengis.  Ríkið á ekki að leggja stein í götu þeirra sem vilja stofna skóla á hvaða stigi sem það er.  Og svo framvegis.

Í gegnum aldirnar höfum við séð skipbrot vinstrimennskunnar trekk í trekk, það nægir að horfa til Sovétríkjanna, Kína (þar sem nú ríkir fasískur kapítalismi), Kúbu, Norður Kóreu...

Og nú sjáum við ennfremur betur og betur að eftir því sem einstaklingurinn hefur meira frelsi til orða og athafna, þeim mun betur vegnar samfélögunum.  "Fórnin" er sú að þeir sem líta til annara með að sjá sér og sínum farborða, fólk sem ekki axlar ábyrgð á eigin lífi, kvartar og nöldrar og heimtar "gömlu góðu forræðishyggjuna". 


mbl.is Mesta verðbólga í tæp 18 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir þetta

Sunnudagurinn í dag hefur einkennst af því að þjóðin veit núna miklu betur en hún hefur sjálfsagt nokkurn áhuga á að vita hversu vel bæði Símanum og Vodafone gengur að koma upp einhverjum tækjabúnaði upp um allar sveitir.

Þegar annað þessara fyrirtækja rekur við, þá fær hitt niðurgang, þannig er það.

Í morgun þótti það fréttnæmast á landinu, reyndar þó víðar væri leitað, að fólk frá Símanum hefði labbað upp á fjall, og nú gæti fólk sent SMS til vina og kunningja af hæsta fjalli landsins.  Það fannst alla vega mbl.is fréttnæmt.  Rétt upp hönd sem misst hefur svefn af áhyggjum vegna þess að ekki hafi verið hægt að senda MMS frá Hvannadalshnjúk? 

Og viti menn, ekki geta Vodafonemenn verið minni.  Þeir hafa lesið þetta í morgun og hugsað: "Shit, þarna er Síminn aldeilis að skúbba... við verðum að gera eitthvað!  Ég veit, sendum langa og mikla fréttatilkynningu í ALLA fjölmiðla, strax eftir hádegið, þar sem við segjum a) hvað við ætlum að setja upp marga GSM senda, b) hversu margir eru komnir upp, og c) hvernig gengur almennt.  Og tölum svo um hvað við erum æðislegir."

Því það er aldrei að vita, kannski myndu tugir þúsunda farsímanotenda hringja í Vodafone strax í fyrramálið og segja: "Starfsfólk Símans gekk á Hnjúkinn í gær og nú get ég sent SMS frá Hnjúknum ef mér dytti í hug að ganga þangað.  Hvað hafið þið gert?  Ha?  Ha? ???" Og slíkt bara má ekki gerast.  Vindgangur Símans í morgun endaði í bremsufari Vodafone um kaffileytið.


mbl.is Nýir gsm sendar settir upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baráttumál almennings í dag, nýjar uppástungur

hljóta jú að vera fyrst og fremst það að trukkabílstjórar fái að keyra án kvaða um hvíldartíma eða annað slíkt.

Eru það ekki sjálfsögð réttindi okkar allra að við getum fengið að mæta svefndrukknum Sturlu á þjóðvegum landsins, eftir að hann er búinn að keyra í 14 tíma án hvíldar?  Það hlýtur að vera hluti af mannréttindum okkar að eiga það á hættu að hann straui yfir bílinn okkar hvenær sem er, af því að hann vill vinna svo mikið og lengi.

Það er líka í þágu alls almennings að þeir sem eyða mest vegum landsins, þ.e.a.s. þeir sem mest keyra og á stærstu og þyngstu bílunum, borgi helst ekkert í viðhald veganna.  Við almenningur hljótum að krefjast þess að fá að borga meira sjálf fyrir eyðingu á vegum sem trukkararnir sjálfir valda.  Það er ekkert annað en fasismi að krefjast þess að þeir sem eyða vegunum mest borgi mest til að viðhalda þeim og lagfæra.

Ég hef nokkrar hugmyndir fyrir trukkarana sem virðast óðum að verða uppiskroppa með djúsí baráttumál, af því að fólk vill alltaf snúa út úr fyrir þeim og sýna með rökum að þeir hafa rangt fyrir sér.

1) Bönnum örvhendu.  Örvhentir krefjast alls kyns sérréttinda sem hamla almenningi í landinu, t.d. eru mjög margir kaffibollar með hankann vinstra megin, og þar af leiðandi eru mun færri kaffibollar fyrir almenning sem er jú upp til hópa rétthentur.

2) Útrýmum vatnsbólum og virkjunum.  Við hljótum að geta verið sammála um það að fyrst það er vatn í hverjum krana á landinu og rafmagn í hverri innstungu, þá þurfum við ekki allar þessar virkjanir og þessi vatnsból.  Við höfum nóg rafmagn og vatn og því eiga Alþingismenn að fara að vinna vinnuna sína og útrýma þessum virkjunum sem eru ekkert annað en barn síns tíma. 

3) Bönnum Björn Bjarnason.  Hann er svakalega vondur og illa innrættur og hugsar ekki um neitt annað daginn út og inn en að klekkja á almenningi.  Almenningur vill vinna án þess að hvíla sig, vill lemja á löggunni þegar löggan ybbir gogg, vill ókeypis bensín og ekkert múður.  Björn stendur í vegi fyrir þessum sjálfsögðu kröfum almennings.

4) Bönnum gula litinn.  Af því bara.

 


mbl.is Sturla: Ég berst fyrir ykkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi frétt er í boði Símans

Gasalega er þetta spennandi.  Ég er sjálfur búinn að vaka síðan kl. 04:00 í nótt til að fylgjast með útsendingunni og þetta er gott sjónvarp.  Gott, segi ég.

Ég hef ekki verið svona spenntur síðan Ellý Ármanns auglýsti húsið sitt til sölu í Fréttablaðinu á föstudaginn ("Læt það ekki fyrir minna en 120 milljónir!").  Góð fréttamennska.

Fylgist með þann 1. maí þegar mjólkurfræðingar frá Flóamönnum fara á kajak út í Kolbeinsey til að kanna hvort nýja hundamjólkurjógúrtið þoli flutning á sjó við erfiðar aðstæður.  Það fara víst 34 manns og 10 fararstjórar, bein útsending í gegnum vefmyndavél Mjólkursamsölunnar og alles.

Það verður ekkert smáspennandi, og rökrétt framhald af þeim hæðum sem íslensk fjölmiðlun er að ná um þessar mundir.  Mér skilst að Lára Ómarsdóttir muni hafa náð samningum við langvíur í Kolbeinsey þess efnis að þær grýti eggjum sínum í mjólkurfræðingana þegar þeir koma að landi... og allt í beinni.


mbl.is Bein útsending frá Hnjúknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gallinn við svona framkvæmd

Er sá að þegar kosið er um tiltekið og afmarkað málefni, oft á tíðum mál sem velflestum er sama um, þá muni þrýstihópar, fámennir en háværir klúbbar, fá sínu framgengt þvert á almannahagsmuni.

Nú spái ég lítið í þessum vegi, ég á líklegast eftir nota hann kannski 2x um ævina, og er í raun slétt sama um hann.  Hins vegar eru svona útnáravegir oft á tíðum slysagildrur, og ég vel á fjögurra ára fresti fulltrúa til að sjá um þessa hluti fyrir mig, aðila hvers dómgreind ég treysti (umdeilanlegt eins og það nú er eftir á að hyggja), svo ég þurfi ekki að setja mig inn í hvert einasta smámál sem upp kemur og einhver sér ástæðu til að mótmæla og fjargviðrast út af.

Landvernd ásamt Náttúrverndarsamtökum Íslands (einkaklúbbi Árna Finnssonar), eru dæmi um fámenna þrýstihópa sem einhverra hluta vegna hafa svo til óheftan aðgang að fjölmiðlum og virka því mun stærri en þeir í raun eru.  Og bara af því að handfylli af náttúrverndarsinnum finnst ómögulegt að raska náttúrunni almennt (þessir aðilar eru sífellt á móti öllu sem getur haft áhrif á náttúruna, það er að segja ef það runnið undan rifjum "hægrimanna", sem Árna er sérstaklega í nöp við).

Útkoman úr kosningunni verður eflaust afgerandi, þeir sem taka þátt verða flestir á móti því að ráðist verði í nokkrar framkvæmdir á svæðinu, og Landvernd og Árni eiga eftir að mæta glaðhlakkalegir í fjölmiðla og fullyrða að "þjóðin hafi talað".  Þegar í raun og sann þjóðin segir lítið því henni er alveg sama, en einstaka fótgönguliðar í herdeildum samtaka á borð við Landvernd fara í allar tölvur sem þeir komast í til að greiða atkvæði.

Landvernd og Árni eru ekki meiri talsmenn þjóðarinnar en trukkabílstjórarnir.

Svona í ljósi þess að Árni sagði í viðtali um daginn að þeir sem ekki eru honum sammála um útfærslu á náttúruvernd séu hægrimenn og til einskis nýtir, þá væri ekki úr vegi að spyrja Árna hvaða skoðun hann hefur á því að hans fólk (sem ég reikna með að sé vinstrisinnaðara en sjálfur Lenín) vilji útrýma skóglendi á Hólmsheiði svo hægt sé að setja flugvöll á þann stað í borginni þar sem aðstæður til flugs eru hvað verstar.  Eða getur verið að helstu talsmenn náttúrverndar sjái eingöngu til efni til að verja náttúru gegn ágangi "hægrimanna" en ágangur vinstrimanna sé eðlileg framþróun þjóðinni til heilla?

Bara spyr


mbl.is Almenningur segi álit sitt á Gjábakkavegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýðing:

Mér finnst ósanngjarnt að við skulum ekki fá að brjóta lög í friði fyrir löggunni.  Það er ótrúlegt að löggan skuli taka á þeim sem brjóta lögin, í stað þess að leyfa þeim að gera svo eftir behag.

Við berjumst fyrir rétti allra þegna, það er réttur allra þegna að fá að keyra vörubíl ótakmarkað og án hvíldar.

Ég mætti með kylfu að vopni til að sýna mínum mönnum samstöðu, ég átti ekki bíl á Kirkjusandi, mætti bara með kylfu.  Það er ótrúlegt að löggan skuli hafa tekið hana af mér.  Og að hún hafi svo ekki viljað láta mig fá hana til baka!

Jújú, ég réðist á lögguna... sorrí og allt það, en að löggan skuli síðan ráðast á MIG eftir að ég hafði snúið drenginn niður, er ótrúlegt ofbeldi af hennar hálfu.

Við búum í lögregluríki þar sem maður má ekki lengur brjóta lög að vild eins og í siðmenntuðu ríki, þar sem maður má ekki lengur ganga um vopnaður og ógnandi í friði fyrir lögreglumönnum sem hirða af manni vopnin, og maður má ekki lengur lemja lögregluþjóna án þess að þeir bregðist við og taki á manni á móti, og kæri mann svo.  Hvað varð um frelsið?  Hvenær urðum við að þessu fasistaríki þar sem vopnaburður á almannafæri er illa séður?  Þar sem maður má ekki lengur ógna öðrum?  Þar sem löggan er yfir það hafin að láta lemja sig?  Jónas Kristjánsson, getur þú kannski svarað því?


mbl.is Missti stjórn á skapi sínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Inconvenient truth?

Þetta getur varla verið nokkuð sem umhverfis-sértrúarsöfnuðirnir vilja að staldra sé við. 

Þórunn hefur ekki vílað fyrir sér að fara með rangt mál þegar hún ræðir um mengun og losun álveranna á Íslandi.  Sjálfur Messías umhverfiskirkjunnar, Al Gore, er með svo margar beinagrindur í skáp sínum, að honum dugar ekkert minna en heilt fataherbergi til að rúma þær allar.  Hann sjálfur stundar ansi ó-umhverfisvænan lífstíl, hann á stóran hlut í hinum og þessum fyrirtækjum sem hann kallar "græn" og hvetur menn óspart til að fjárfesta í þeim, án þess að þetta þess að hann á sjálfur fjárhagslegra hagsmuna að gæta í téðum fyrirtækjum.

Þá er ekki staldrað við þá staðreynd að stór hluti af fullyrðingum sértrúarsafnaðanna eru ósannaðar með öllu, og í raun ekkert annað en dylgjur og áróður.

Nú bætist þetta við.  Mengun minnkar frá álverum, sem gengur þvert á áróður hinna heittrúðu.  Gera má fastlega ráð fyrir því að þessum niðurstöðum verði stungið ofan í lífrænt ræktaða hliðartösku safnaðarins og þeir fordæmdir og útskúfaðir sem voga sér að minnast á þær.


mbl.is Minni mengun frá álverum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband