Bloggfærslur mánaðarins, júní 2008

"Ég hef mikinn áhuga á umhverfisvernd, en....

.... ég held að ég finni bara ekki bílastæði."

Það segir meira en mörg orð að fólk skuli drífa sig á "baráttutónleika" til stuðnings náttúruvernd, en nota til þess einkabílinn.

Svona eins og þegar flokksþing VG var haldið í fyrra og allir (nema einn) fundargestir mættu á sínum bíl, eins og frægt er orðið.

Umhverfisvernd hjá flestum er í orði en ekki á borði, fólk vill hafa sín þægindi en á tyllidögum friðar eigin samvisku og skilgreinir sjálft sig sem umhverfissinna.

Svona eins


mbl.is Fjölmenni í Laugardalnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dr. Dagur borgarstjóri? Slæm tíðindi

Það verður að segjast eins og er að það finnst enginn stjórnmálamaður með viti í Reykjavík.  Sjálfstæðisflokkurinn er sennilega ónýtasta skrapatól sem fyrirfinnst á byggðu bóli, veruleikafirrtir örvitar sem tröllríða þar öllu í borgarstjórninni.  Og það er vægt til orða tekið, enda sjálfur Sjálfstæðismaður.

Vinstri Grænir eru í borginni eins og á landsvísu ekkert annað en grátkór kommúnista umluknir fölgrænni slikju, skemmst er að minnast þess þegar Svandís ákvað að senda borgarbúum reikning upp á tæpa milljón fyrir upphlaup sitt og persónuleg málaferli gegn OR, reikning sem henni bar að greiða sjálf.  Hennar fyrsta starf í Hundadagastjórninni með BDSM listanum var að færa sukk og spillingu á allt annað og æðra stig en áður.

Framsókn og F-listinn eru djók og ekki orðum á þá flokka eyðandi.

En Samfylkingin er flokka verst.  Dr. Dagur er skaðræðisgripur, ber einn og óstuddur ábyrgð á fjölda umhverfisslysa, aðgerðir sem hann þvingaði í gegn án nokkurrar skynsemi, nú eða hefur leynt og ljóst staðið í vegi fyrir.  Bygging HR í Vatnsmýrinni er mesta umhverfisslys síðari tíma, og Dagur ber einn ábyrgð á að hafa úthlutað lóðinni.  Bílastæðaflæmi ryðja burtu náttúruperlu í miðju borgarinnar, umferðin verður endanlega vonlaus um Miklubrautina vestur og austur borgina.  Er það tilviljun að stuttu eftir úthlutunina fékk Dagur feita og góða stöðu við kennslu í HR?

Dagur ákvað líka að hola niður bensínstöð í aðflugi farþegavéla, svona rétt steinsnar frá flugbrautarenda í Vatnsmýrinni.  Sniðugur strákur.

Dagur hefur líka staðið fyrir því, ásamt félögum sínum í Samfylkingunni (sér í lagi Kristjáni Möller) að slá Sundabraut út af kortinu með töfum og þvælingi.  Dagur segist vilja Sundabraut, en þegar rýnt er í málið sjáum við að hann hefur skipulega tafið málið og þæft árum saman, og nú er svo komið að Kristján Möller hefur endanlega (án þess að segja það fullum fetum) slegið Sundabrautina af.

Svo til hamingju kjósendur.  Við höfum ekkert nema botnfall íslenskra stjórnmála um að velja, og þið veljið spillingarpésana og sukkarana í Samfylkingunni.  Sem eru svo sem ekkert verri en hinir í borginni.  Þið vitið þó alla vega að þið fáið EKKI Sundabraut verði Dagur borgarstjóri, skattar munu hækka, heita vatnið mun hækka, kroppað verður áfram úr Vatnsmýrinni og Öskjuhlíðinni án þess að neitt vit sé í, og umferðartafir í borginni munu bara halda áfram að lengjast og versna.  Vel valið.

En allt er þó betra en Villi Vinstrimaður og Gísli Marteinn, ég viðurkenni það fúslega.  Hvað þá borgarstjóraskrípið. 


mbl.is Samfylkingin fengi meirihluta í borgarstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sameining blautra drauma VG og Samfylkingarinnar

Aldrei fór það svo að VG og Samfylkingin fengju ekki sinn hvorn drauminn uppfylltan á einu bretti.

Vinstri grænir vilja netlöggu þar sem ritskoðun, skoðanahöft, og eftirlit er í hávegum haft á netinu, og Samfylkingin vill skriffinskubákn ESB til að kæfa allt sem heitir frelsi einstaklingsins eða sjálfstæði.

ESB er tilgangslaust bákn sem þráir ekkert heitar en að staðla allt og koma röð og reglu á allar hliðar mannlífsins.  Miðstýring er nirvana á þeim bænum.  Rétt eins og ESB hefur staðlað útlit á gúrkum og skilgreint (með milljarða tilkostnaði) hvenær kálfur er kálfur og hvenær ekki, þá vilja menn í ESB landi koma böndum á óstöðluð skrif bloggara.

Og Vinstri grænir sleppa aldrei tækifærinu til að óska eftir því að frelsi verði heft og forræði mála færð til ríkisins (þar sem þeir sjálfir vilja að sjálfsögðu vera allt í öllu).

Því má reikna með að báðir kommúnistaflokkarnir á landinu fagni þessari ályktun. 


mbl.is Vilja setja hömlur á bloggara
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Bönnum allt" kórinn kyrjar hærra

Vinstrimenn á Íslandi vilja, sem fyrr, banna allt sem ekki er sérstaklega leyft með tilskipun frá ráðherra.  Hluti af því er að banna allar virkjanir og orkufrekan iðnað af því að þeim finnst það einhvern veginn skynsamlegra að nýta EKKI auðlindir landsins og láta frekar "eitthvað annað" koma í staðinn.

Þetta "eitthvað annað" er aldrei útskýrt neitt nánar.  Nema þegar formaður vinstrisinnaðasta flokksins minnist á brugghús í Eyjafirði sem fínt "eitthvað annað", og er búinn að gleyma því að hann var alfarið á móti því að bjórinn yrði leyfður á sínum tíma (að leyfa bjór er soldið forsenda fyrir því að geta stofnað brugghús).

Þetta er hið besta mál, ef menn vilja virkja fyrir norðan og reisa þar álver, þá er það þeirra mál og ekkert nema gott um það að segja.  Þrátt fyrir að hinir móðursjúku vinstrimenn tali um að ímynd landsins sé í rúst og allt hvað eina, bara út af 2 álverum sem reist hafa verið og einni virkjun, þá er ekkert sem sannar þá fullyrðingu.

Hættum nú að hlusta á þessa vælukjóa sem vilja helst friða allt á landinu og láta íbúa þess lifa á fjallagrösum og lepja dauðann úr skel, allt í nafni þess að friða einhverjar lækjarsprænur og afdali - sem nóta bene yrðu ekki fyrir nema lágmarks raski.  Þangað til þetta fólk getur komið með önnur svör en "eitthvað annað", þá er ekkert mark á því takandi.  Hvort sem það titlar sig frægar söngkonur eða hausverkjahvetjandi álfahljómsveitir.

Nú þarf að skapa verðmæti, tryggja lífsviðurværi á landinu og hafna endanlega þessum "eitthvað annað" málflutningi vinstrapakksins. 


mbl.is Viljayfirlýsing framlengd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinstri Grænir = Afturför og lífsgæðakúgun

Vinstri Hreyfingin Grænt Framboð (eins og leiðinlegri þingmenn þess flokks kalla samkundu sína undantekningalítið) er með þessu að kalla eftir algeru hruni hagkerfisins á Íslandi.  Sem er svo sem það sem þeir hafa boðað og kallað eftir undanfarna áratugi í margnefndum kommúnistaflokkum þeim sem landsins stækustu afturhaldsseggir hafa prýtt.

VHGF virðist ekki skilja hvernig hjól efnahagslífsins virka.  VHGF virðist halda að til sé einhver dularfull uppspretta auðs (frá auð-valdinu, væntanlega) sem á réttilega heima hjá öðrum en þeim sem skapa verðmæti í samfélaginu.

VHGF virðist vera á þeirri skoðun að auðlindir okkar skuli ekki nýta, því nýting þeirra getur haft í för með sér breytingu á þeim eða röskun. 

VHGF virðist, samkvæmt veikburða og veruleikafirrtum málflutningi kaffihúsakverúlantanna sem tala sífellt fyrir hönd þess flokks, vera alfarið á því að fólk sé miklu betur sett sveltandi úti í vegkanti, með öllu óheimilt að sjá sér farborða, en með ósnortna náttúru til að deyja í, frekar en að sýna stórhug og dug og sjá sér og sínum farborða með nýtingu þeirra auðlinda sem landið okkar prýða.

Ef fólk virkilega leggur við hlustir þegar VHGF byrjar grátkór sinn, þá komast menn fljótt að því að þeir eru búnir að eyða hverra einustu skattkrónu um það bil 12 sinnum með "tillögum" sínum.  Í huga hinna veruleikafirrtu VGHFista snýst réttlæti um að þjóðnýta allt og alla (enda er í þeirra huga engum treystandi til eins eða neins nema ríkið hafi fulla og algera umsjón með öllu okkar lífi), og "skynsemi" um að hreinlega banna alla nýtingu auðlinda.

Ég fagna hins vegar því þegar kjánaprikin í þessum hjákátlega flokki hefja sinn rammfalska forræðishyggjusöng.  Forsöngvarinn mótmælir harðlega lögleiðingu bjórs í fyrsta erindi lagsins, en notar svo bruggverksmiðju sem dæmi um frábæra einyrkjastarfsemi í erindi tvö.  Hinn laglausi hljómborðsleikari glamrar á gamlan skemmtara um það hversu dásamlegt það væri ef allt þetta viðbjóðslega bankamannapakk myndi verða rekið úr landi, þá yrðu sko allir glaðir.

Ég fagna því, vegna þess að við sjáum þá hvar vitleysismörkin liggja.  Þegar VHGF treður upp, þá vitum við um leið hver er heimskulegasta afstaða í hverju máli fyrir sig.  Og þar af leiðir getum við alltaf haldið umræðunni hægra megin við þennan núllpunkt sem VHGF færir okkur.  Jú, VHGF er Leoncie stjórnmálanna, sjálf sannfærð um eigið ágæti, en í huga flestra annara mælikvarði á botninn.

Þá væri ekki úr vegi að spyrja VHGF bandið hvað þau leggja til í staðinn fyrir eðlilega nýtingu auðlindanna?  Hvaðan eiga allir peningarnir að koma til að þjóðnýta þjóðfélagið og leggja af allt sem heitir einstaklingsfrelsi og einkaframtak?  Svörin sem hafa hingað til komið í viðlögum sveitarinnar eru "bara eitthvað annað" og "frá hinum ríku".  Gallinn er bara sá að "bara eitthvað annað" er doldið óljóst, og "hinir ríku" færa sig bara út úr landi ef þessi falska hljómsveit kemst í aðstöðu til að banna alla aðra tónlist nema sína eigin.


mbl.is VG: Vilja bjarga Þjórsá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Froðusnakkur Samfylkingarinnar mættur í hús

Samfylkingin hefur löngum verið þekkt af öðru en yfirveguðum yfirlýsingum eða skynsömum pólitíkusum, og það er svo merkilegt að meira að segja í þessu máli (þegar hið ólíklega gerðist að Samfylkingarmaður tekur skynsamlega afstöðu) tekst þeim að klúðra hlutunum "stóran tíma."

Ég vona innilega að hætt verði við að byggja þetta leikfangahús fyrir læknana í Vatnsmýrinni.  Við ættum fyrst að reka lág- og miðtækni sjúkrahús af myndugleik áður en við förum að færa okkur út í hátækni hlutann.

En auðvitað gat maður reiknað með því að froðusnakkar í Samfylkingunni gætu klúðrað þessu.  Málið er nefnilega að Gunnar hefur nákvæmlega ekkert forræði í málinu, hann er bara wanna-be ráðherra sem vill sveifla ímynduðum veldissprota sínum af og til, svona til að minna á að kannski ætti almenningur að hætta að hlæja svona mikið að honum.  Og fetar þannig í fótspor Össurar, Ingibjargar, og Björgvins G.  Allt ráðherrar og fulltrúar Samfylkingarinnar sem gera álíka mikið gagn og svæsin fótsveppasýking.

Gunnar hefur ekkert forræði í þessu máli, þó hans skoðun sé vissulega rétt - það eigi að slá þessu fjandans sjúkrahúsi á frest og ekki sólunda almannafé í einhver gæluverkefni læknamafíunnar.

Guðlaugur Þór bregst við sem sannur Framsóknarmaður; víst skal spreða milljörðum af skattfé í eitthvað sem er ekki úthugsað, bara til að friða ólátabelgina í læknastéttinni.  Guðlaugur Þór kemur úr flokki sem eitt sinn, í gamla daga, lagði áherslu á að fara vel með skattfé, halda álögum í lágmarki... en nú er hann genginn í Framsóknarflokkinn, flokk sem hefur haft það að markmiði alla tíð að hygla flokksgæðingum og eyða almannafé (sem fólk eins og Sóley Tómasdóttir tala um sem ókeypis fjármagn).

Það væri vel þess virði að leita að leyfum Framsóknarflokksins á einhverju eyðibýlinu úti á landi, þar sem þessi flokkur á jú heima, og segja meðlimum þess flokks nákvæmlega hvað þeir geta gert við þetta sjúkrahús.


mbl.is Frestun ekki inni í myndinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ósammála málstaðnum, en fagna framtakinu

Ég fagna framtakinu, gaman að fá þessar hljómsveitir/söngkonu sem fjöldi fólks finnst gaman að hlusta á (Guð má vita af hverju).

Þau eru náttúruverndarnöttarar, misskilja mikilvægi á nýtingu auðlindanna, en það geta ekki allir haft rétt fyrir sér, en þau berjast fyrir sínum skoðunum og vekja athygli á þeim á uppbyggilegan hátt, ólíkt skemmdarvörgunum sem hafa holað sér niður á hálendinu undanfarin ár.

Nýting auðlinda á Íslandi er nauðsynleg, við spörum heiminum mikla mengun með því að nýta okkar orkulindir frekar en að orkan sé unnin annars staðar í heiminum með mun meiri mengun.

Það einkennir reyndar málflutning öfgafullra náttúruverndarsinna; krafan um að það sé betra að mengun sé meiri annars staðar, en að við leggjum okkar á vogarskálarnar til að draga úr hnattrænni mengun.

Á einhvern hátt finnst þessu fólki betri framtíðarsýn að við verðum öll japlandi fjallagrös í lífrænum lopapeysum án rafmagns eða hitaveitu, náttúruvæn fram í fingurgóma en allslaus.

Verði ykkur að góðu í sumar þegar tónleikarnir eru og góða skemmtun. 


mbl.is Ísland verði áfram númer eitt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Loksins laus við Hillary

Hillary hefði verið afar slæmur kostur demókrata, hún er fulltrúi gamalla lausna og hernaðarbrölts.  Engu að síður naut hún stuðnings femínista í Bandaríkjunum og víðar, sem ólmir vildu fá hana sem forseta... bara af því að hún er kona.

Það eitt og sér er mjög ógnvekjandi.  Femínistar eru tilbúnir að fórna allri skynsemi og elta þess í stað einn leiðtoga bara byggt á því hvernig hann á það til að stilla sig af við að pissa.

Hillary verður ekki varaforsetaefni Obama, það held ég að sé algerlega útilokað, en þeim mun líklegra að henni verði boðin staða í ríkisstjórninni annað hvort sem utanríkisráðherra eða heilbrigðisráðherra, og hún verður áberandi í kosningabaráttunni til stuðnings Obama.

Mitt gisk er að að John Edwards verði fyrir valinu hjá Obama, íbenholt og fílabein.

En við getum öll glaðst yfir því að Hillary laut í lægra haldi, heimurinn þarf ekki á öðrum George Bush að halda, þó í pilsi væri. 


mbl.is Óskaði Obama til hamingju
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerfiskallinn Vilhjálmur í sjálfsblekkingunni

Það er ótrúlegt, og væri í raun hlægilegt ef ekki svona sorglegt, að sjá Vilhjálm göslast áfram í þessar sjálfsblekkingu sinni. 

Heldur hann í alvöru að það fyrirfinnist sú hræða á byggðu bóli sem gæti hugsað sér að fá hann sem borgarstjóra?  Það er meira að segja alger spurning hvort hann væri betri en núverandi borgarstjóri sem er viðlíka vel liðinn og gyllinæð og ámóta hæfur í starfi og hörpudiskur að skrifa skáldsögu.

Af hverju þarf Vilhjálmur að tala um þetta eins og um sé að ræða einhvera sjálfstæða ákvörðun óháða honum?  Að "einhverjir" séu að færast nær ákvörðun?  Vilhjálmur, ef hann hefði snefil af sómatilfinningu, ætti fyrir lifandi löngu að vera búinn að afsala sér þessu.

Það hefur aldrei, ég fullyrði það, aldrei verið jafnóhæfur stjórnmálamaður við völd á Íslandi, og af nógum mörgum er að taka.  Vilhjálmur kemur af og til klökkur fram og talar um hvað þetta sé ósanngjarnt, hann hafi unnið svo vel í þágu borgarinnar alla sína tíð.  

Já er það, Vilhjálmur?  Ég veit ekki betur en að þú hafir eytt 16 árum af þínum ferli í minnihluta þar sem R-listinn fékk drjúgan tíma til að leggja fjárhag og ímynd borgarinnar í rúst.  Er það þitt góða starf?  

Mér er alveg nákvæmlega sama hvað þú hefur gert í gegnum tíðina fyrir íþróttafélög eða félagasamtök sem hafa þurft fyrirgreiðslu.  Þú hefur EKKI staðið vörð um hagsmuni kjósenda (og hagsmunir kjósenda eru klárlega þeir að vinstrimenn fái ekki að stjórna), og eina sem þú afrekaðir var að gera ísskáp útlægan úr miðborginni.

Ég, og aðrir Sjálfstæðismenn, krefjumst þess að þú skríðir aftur undir steininn þaðan sem þú komst, og látir aldrei sjá þig aftur meðal siðaðs fólks.  Þín mun ætíð verða minnst sem mesta skúrksins í sögu Sjálfstæðisflokksins, mannsins sem eyðilagði flokkinn í borginni í heila kynslóð. 


mbl.is Þrýsta fastar á Vilhjálm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband