Framsóknarmenn samir við sig
27.5.2008 | 21:02
Tekur einhver mark á framsókn í dag? Varla.
Örflokkur sem stendur bara fyrir afturhald, mykjumokstur og þröngsýni. Framsóknarflokkurinn á heima uppi í sveit. Guðni og Framsókn skilja ekki út á hvað 20. öldin gekk (enda föst á þeirri 19.) og þaðan af síður 21.
Flokkurinn hans Guðna ber ábyrgð á því að við búum við handónýtt landbúnaðarkerfi sem byggir á lénsskipulagi miðalda, og þannig vill Guðni hafa það áfram. Flokkurinn hans Guðna ber ábyrgð á því að við búum við óskilvirkt og rándýrt heilbrigðiskerfi sem kostar þjóðina of fjár í gegnum óhæfa stjórnendur og skilningsleysi á rekstri. Og þannig vill Siv hafa það.
Guðni ætti að tala minna og einbeita sér að því að vinda ofan af hugmyndafræðilegri eyðimörk síns flokks og drífa sig inn í nútímann. En það er væntanlega til of mikils ætlast.
Ríkisstjórn brostinna vona | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Framsókn á ekki heima í sveit, flokkinn á að þurrka út. Þeir eiga mikla sök á vandanum í dag og kunna ekki að skammast sín.
ha ha (IP-tala skráð) 27.5.2008 kl. 22:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.