Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008

Trukkasnillingurinn Sturla hefur enn í hótunum

af dv.is

"Sturla sver af sér óorðna atburði

Sjálfsagt hefur einhverjum brugðið í brún síðdegis þegar útvarpsstöðin Bylgjan spilaði auglýsingu þar sem Sturla Jónsson vörubílstjóri kynnti sig til leiks. Síðan staðfesti hann, það sem alþjóð, veit að hann hafi staðið fyrir mótmælum undanfarið en vildi að það kæmi skýrt fram að hann bæri enga ábyrgð á atburðum sem munu eiga sér stað á laugardaginn.

Ætla mætti að vörubílstjórar, eða aðrir hópar, væru að ráðgera aðgerðir á laugardaginn sem eru svo svakalegar að sjálfur Sturla, sem hefur ekki gefið þumlung eftir í mótmælum hingað til, treysti sér ekki til þess að koma nálægt þeim.

Sturla sagðist í samtali við dv.is ekki hafa hugmynd um hvað væri í vændum á laugardaginn og neitaði að tjá sig frekar um málið.
"

Svo mörg voru þau orð.  Sturla virðist vera orðinn skyggn, því hann segir að hann hafi aldrei planað neitt, hlutirnir bara gerist (svona collective awareness hjá trukkurunum).  Nú hefur hann væntanlega dreymt að eitthvað gerist á laugardaginn, eitthvað sem er honum algerlega óviðkomandi.  Þá er það spurningin hvað Sturla ætlar að gera á laugardaginn sem hann ber enga ábyrgð á og kemur honum ekkert við.  

Hvernig er það, er enginn til þess að ala þennan ofvaxna smákrakka upp? 

 


"Ræða ítarlega" = drepa með öllum mögulegum ráðum

Stjórnarandstaðan á Íslandi (sem er í raun bara þingflokkur Vinstri Grænna) notar orðasamböndin "ræða ítarlega" eða "ná þverpólitískri sátt" þegar  hún krefst þess að fá að ráða þó svo að hún sé ekki í stjórn.  Sem er alltaf.

Vinstri Grænir, sem gangast upp í því að vera alltaf á móti öllu, sama hvað það er, hafa engan áhuga á að ræða eitt né neitt eða ná sátt um eitt né neitt.

Hugmyndir VG um pólitíska sátt eru af sama meiði og hugmyndir Samfylkingarinnar um opna ESB umræðu; annað hvort gera menn eins og VG vill í einu og öllu (eða eru sammála Samfylkingunni um hversu meiriháttar æðislegt ESB er), annars sýna menn valdníðslu og yfirgang.  

VG virðist ekki skilja að þeir ráða ekki, en samt heimta þeir alltaf að fá að ráða.

Vonandi verður hægt að afgreiða frumvarp um sjúkratryggingar á þessu þingi, mér finnst alger óþarfi að ræða þetta mál í þaula við stjórnarandstöðuna sem hefur hvort eð er ekkert merkilegt fram að færa.  

Það þarf að kenna þessari stjórnarandstöðu að hún hefur ekkert um málin að segja og ef hún vill láta taka mark á sér þá ætti hún að fara að haga sér af skynsemi og leggja fram málefnalegar tillögur, en þegja ella. 


mbl.is Annasamir dagar á Alþingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skaðar umræðustjórnmálastefnu Samfylkingarinnar

Samfylkingin hefur aldrei verið hrifin af því að Ísland stundi sjálfstæði sitt að neinu marki, og sennilega sér hin hæstvirta utanríkisráðfrú þetta sem hugmyndafræðilega atlögu að hennar tvíbenta draumi um að komast í ESB (og kasta sjálfstæði landsins fyrir róða) og komast í öryggisráð SÞ (og tvöfalda þannig fjölda erindreka landsins hjá SÞ án þess að þeir hafi nokkuð þarflegt að gera).

Málið er nefnilega að hvalveiðar (og hvers kyns athæfi Íslands sem hefur í för með sér verklega sjálfstæðisyfirlýsingu eða gæti mögulega móðgað útlendinga) stríðir gegn þessum tveimur áhugamálum Samfylkingarinnar, valdaafsali og útþenslu hins opinbera.

Auðvitað vill Samfylkingin ekki hvalveiðar, en það hefur ekkert með náttúruvernd að gera.  Nákvæmelga ekkert.  Samfylkingin vill ekki að neitt sé GERT, og hvalveiðar fela í sér AÐ GERA eitthvað, og það sem verra er, GERA eitthvað sem EINHVER ER ÓSAMMÁLA.  Í því felst fordæming Samfylkingarinnar.

Við sjáum þetta hjá öllum ráðherrum þess flokks og þeim sirkus sem þeir kalla borgarstjórnarflokk, að þá sjaldan þeir neyðast til að GERA eitthvað (þ.e.a.s. koma sér ekki undan því með skipan nefnda eða ráða), þá kokka þeir alltaf hlandvolgan graut sem engum finnst góður en engum heldur beinlínis óætur.  Allt sem heitir krydd eða almennileg eldamennska eykur hættuna á að einhver, einhvers staðar, einhvern tíma verði mögulega, kannski ósáttur, og það er glatað atkvæði dán ðe læn. 

Mér er slétt sama um hvalveiðar, en mér finnst hins vegar alveg góð og gild ástæða að veiða hvali þegar einhverjir sem hafa ekkert um málið að segja banna okkur það, svona bara af því bara.  Nú, eða bara til að pirra Árna Finnsson, sem er án ef auðpirraðasti maður landsins.


mbl.is Hagsmunum fórnað með veiðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjölmenningarhugtakið er brenglað

Tvennt í umræðu um innflytjendur er gríðarlega skaðlegt.

Annars vegar eru það vitleysingar eins og þessir í Frjálslyndu-Nýju-Afli sem eru bara á móti útlendingum, punktur, en reyna að fegra þá skoðun sína.  Ísland fyrir Íslendinga, skrifaði de facto formaður flokksins um daginn, og það meinar hann.  Varaformaður flokksins undirstrikaði svo þá afstöðu flokksins þegar hann sagði að miklu betra væri að "hjálpa" flóttamönnum þar sem þeir eru núna, og virðist vilja henda í þá einhverjum hrísgrjónum og teppum í flóttamannabúðum en að bjóða þeim framtíð á öruggum stað.

Hins vegar eru það blábjánarnir sem vilja leyfa hverjum sem er að koma til landsins og gera það sem þeim sýnist, meira að segja að fara eftir þeim lögum sem þeir kjósa hverju sinni.  Umburðarlyndi, kalla þeir það.  Víðsýni, á tyllidögum.  Fjölmenningu, þegar þeir eru að ausa úr skálum heilagrar vandlætingar sinnar.  

Ég vil bjóða útlendinga velkomna til Íslands.  Þjáða sem hrausta, konur sem karla, hvernig á litinn sem þau eru.  En hins vegar verður fólk sem hingað kemur að sætta sig við þau lög og þær reglur sem hér gilda, annars verður fólkið að finna sér annan stað að vera á.  Útlendingar sem ekki hafa ríkisborgararétt, og brjóta hegningarlög (t.d. fíkniefnalöggjöf) eiga að afplána hér á landi (nema samningar kveði á um annað) og vísa svo úr landi og meina að snúa hingað aftur.  Ekkert flókið.

Hér á landi er töluð íslenska, og útlendingar sem hingað flytjast eiga að læra íslensku, og engar refjar. 

Útlendingar sem koma til landsins eru eins og gestir í heimahúsi, sem mögulega er boðið að gista til langframa.  Gestunum verður að lítast á húsnæðið og vera sáttir við þær reglur sem gilda á heimilinu, annars geta þeir farið annað.  Gestir geta ekki komið inn og sagt "jú, mér líst vel á þetta en það verður að breyta reglunum til að ég vilji vera".  Húseigandi á þá að segja: "já er það?  Viltu þá ekki bara fara eitthvað annað ef þetta er ekki nógu gott fyrir þig?"  

Ekki flókið, ekki rasismi, ekki þröngsýni.  Það er merkilegt hvernig fólk eins sem er í flokki Kolbrúnar Halldórsdóttur prédikar að það sé ótækt að skipta sér af því hvernig útlendingar haga sér á Íslandi, en hún svo sjálf setur upp höfuðslæðu þegar hún er í heimsókn í arabalöndum.  Aðlagar sig að kröfum í þeirra heimalandi en vill ekki setja kröfur á þá hérna.

Rífum þetta upp úr rasismaumræðu Frjálslyndra sem vilja ekki útlendinga, en gætum þess jafnframt að detta ekki ofan í staurblindnispytt sósíalistanna sem vilja bara veita útlendingum réttindi en engar skyldur.  

Við megum ekki láta Frjálslynt-Nýtt-Afl hertaka umræðuna og gera alla svo hrædda við að krefjast þess að innflytjendur takist á herðar skyldur jafnframt því að öðlast réttindi.  Og að sama skapi megum við ekki láta fjölmenningarkverúlantanna stjórna umræðunni, því þeir virðast trúa því að allir útlendingar séu góðir og enginn vilji gera neitt illt.   


mbl.is Dönsk stjórnmál á suðupunkti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanaðkomandi, bitte schön

Enginn núverandi fulltrúa í borginni á skilið að leiða flokkinn í næstu kosningum, og enginn þeirra á í raun skilið að bjóða sig fram aftur, slík er sú skömm sem þeir hafa leitt yfir minn flokk.

Best væri að fá einhvern utanaðkomandi til að leiða flokkinn, einhvern sem hefur ekki gerst sekur um pólitísk landráð; mokað undir stækustu vinstristefnu í borginni.

Ef núverandi fulltrúar dirfast að bjóða sig fram aftur, þá gera þeir það sem stjórnlausir vinstrimenn að villa á sér heimildir.  Og þó það sé tregara en tárum taki að segja það, þá held ég að kjósendur ættu frekar að kjósa vinstrimenn sem viðurkenna slíkt og eru stoltir af (hvernig sem það má nú í ósköpunum vera) heldur en að kaupa svikna vöru sem þykist hægri sinnuð.

Ég kalla eftir nýju framboði gegn mínum flokki, fari hann ekki að sjá að sér.  Flokki sem stendur vörð um einstaklingsfrelsið og hefur það að markmiði að minnka ríkisafskipti og lækka skatta á vinnandi fólk.  Flokk sem lætur ekki aumingjadýrkunina og meðalmennskuna ráða öllu og fer að viðurkenna að þó réttindi öryrkja og aldraðra séu mikilvæg, þá er kominn tími til að segja að slíkir hafi skyldur líka, og við hin höfum sömuleiðis okkar réttindi.... og skyldur.

 


mbl.is Borgarstjóri mun leiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hahahahaha... frekar rýr uppskera

Segja má að hinar sjálfskipuðu hvunndagshetjur hafi birst með skottið rækilega á milli lappanna í dag.  Mikið er gaman að sjá að þessir kjánar virðast óðum að sannfæra þjóðina um eigin vitleysisgang (held að bréfið sem Sturla skrifaði hafi haft mikið þar að segja).

Þessir jólasveinar hafa engin markmið önnur en að pirrast út í allt og alla og kenna öðrum um eigin ófarir og röngu ákvarðanir.  

Hversu margir af þessum 100 ætli hafi verið skólakrakkar í leit að smá upplyftingu?  Hvernig væri nú að Sturla og þessir álfar færu að vinna sína vinnu í stað þess að nöldra í sífellu og hegða sér eins og smákrakkar?  Frekjuköst og yfirgangur skila aldrei neinu til langframa, og trukkararnir eru að læra þá lexíu á gamals aldri. 


mbl.is Hrópað af þingpöllum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Magnús Þór Hafsteinsson - Messías stjórnmálanna (að eigins sögn)

Það er stórkostlegt að lesa pistil Magnúsar Þórs Hafsteinssonar, varaformanns í Frjálsyndu-Nýju-Afli-Flokknum, á eyjan.is.  Stundum hef ég heyrt af fólki með Napóleonskomplexa, en ég efast um að nokkur komist með tærnar þar sem hann hefur hælana.

Gleymum ekki að Magnús fannst ótækt að Íslands tæki á móti flóttamönnum (einstæðum mæðrum) sem búa í tjöldum í flóttamannabúðum í Írak, það væri svo bágborið ástand á Skaganum að miklu betra væri bara að hjálpa fólkinu þar sem það er í dag, gefa því kannski skó og iPod.  Eða eitthvað.  En hvað um það, þjóðin þekkir öll afstöðu "Frjálslyndra" til innflytjenda; útlendingar eru víst hið besta fólk og þeim ber að sinna af kostgæfni... bara ekki hér.

En skoðun skrif Magnúsar, og spennið beltin, lesendur góðir: 

"Við vorum góður hópum sem bjó til framboðslista og við skelltum okkur í bæjarstjórnarslaginn. Þetta var og er gott lið - með örfáum undantekningum sem eru Karen og Helga systir hennar. Sennilega er ekki ofmælt að ég hafi verið potturinn og pannan á bak við það framboð. Hin voru öll algerlega óreynd í pólitík. Ég kenndi þeim og leiðbeindi. Á framboðsfundum var það ég sem hélt ræðurnar. Karen Jónsdóttir hefur aldrei geta haldið skammlausa ræðu eða skifað pólitíska grein. En ég taldi rétt að hafa hana í fyrsta sæti. Gefa ungri konu tækifæri og allt það...."

 Magnús var góðhjartaður og sá aumur á þessum viðvaningum, Magnús var heilinn á bak við allt pólitíska bröltið.  Reyndar voru þessar Helga og Karen einhver skoffín, Karen greinilega ótalandi og óskrifandi (hið týna -r- í skrifaði er ritun Magnúsar, gott að tala um hvað einhver sé lélegur að skrifa og stafsetja svo skammirnar vitlaust).  En Magnús, af því að hann er svo góður gæi, gaf henni séns.  Af því að hún er kona.

"Í aðdraganda Alþingiskosninga fyrir rúmu ári skarst í odda. Hún heimtaði að einhver frá Akranesi færi í annað sæti á framboðslista Frjálslynda flokksins í Norðvestur kjördæmi. Lýðræðisleg niðurstaða kjördæmisráðs var hins vegar sú að Kristinn H. Gunnarsson færi í það sæti."

Kristinn, sem er pólitískur sígauni og hefur komið við, held ég, í öllum stjórnmálaflokkum landsins (og er þar þangað til menn fá nóg af honum) fékk afhent annað sætið í kjördæminu á eftir formanninum, og þar með voru 2 efstu menn á listanum frá Vestfjörðum; í kjördæmi sem spannar frá Akranesi til Sauðárkróks (held ég).  Þvílík ósvífni að fara fram á að fulltrúar flokksins kæmu frá öðrum stöðum en kjálkanum.

"Mér fannst Gísli ágætis karl, hann gjörþekkti Skagann og hafði mikla reynslu af félagsmálum bæði í sveitarstjórn og á Alþingi. Bæjarstjóraspurningin var opin, en þegar Sjálfstæðismenn stungu upp á því tveim dögum eftir kosningar að Gísli yrði bæjarstjóri þá samþykkti ég það. Ég kenndi að vissu leyti í brjósti um karlinn. Hann sem fyrrverandi þingmaður var í volæði inni í álveri á Grundartanga. Nöturleg örlög fyrir gamla manninn. Hvers vegna ekki að leyfa karlinum að spreyta sig?

Ég sagði JÁ, og frelsaði Gísla þar með úr rykinu í álverinu.
"

Þetta er uppáhaldshlutinn minn.  Magnús frelsaði gamla manninn úr ánauð í álverinu, þar sem hann var að dauða kominn.  Magnús kominn, frelsarinn sjálfur, og bjargaði honum!  Húrra fyrir Magnúsi!

Ég vil svo að lokum birta ummæli eftir Magnús títtnefndan sem Hafrún Kristjánsdóttir birtir á bloggi sínu á eyjunni.is, og sýnir kannski enn betur þankagang varaformanns Frjálslynds-Nýs-Afls

"Ekki gleyma því að svína á Hellisheiðina, fara gegnum Þrengslin, lenda svo Spittfærnum á Kaldaðarnesmelum, fljúga svo norður í Eyjafjörð yfir Kjöl, sprengja Stebbafr og Halldór Blöndal til helvítis, snúa svo til baka yfir heiðina og bomba Björn Bjarna og borgarstjórnarminnihlutann hálfa leið til andskotans og lenda svo við gamla flugturninn á Reykjavíkurflugvelli og hrynja í það á kránum í Miðbænum."

Já, tökum barasta hringinn og myrðum óbreyttan borgara fyrir að tjá skoðanir sínar (eða ekki, þar sem Stefán er nú ekki mikill skoðanamaður, meira svona jórturdýr bloggsins), og ráðherra og aðra embættismenn, og endum svo góðan dag með því að deyja áfengisdauða í miðbænum.  Segir varaformaður Frjálslynda flokksins.   

En hvernig er það, Stefán og Halldór eiga að fara "til helvítis" en Björn og borgarfulltrúarnir bara HÁLFA leið til andskotans.  Þýðir það þá að Björn og borgarfulltrúarnir eiga að ganga í Frjálsynda flokkinn? 

 


Stoðar lítið að hafa áhyggjur ef ekkert er gert

Varaformaður míns flokks má alveg hafa áhyggjur, hún er svo sannarlega ekki ein um það.  En það hrekkur skammt að hafa áhyggjurnar þegar enginn virðist tilbúinn að grípa til aðgerða til að leysa málið. 

Það að Þorgerður skuli lýsa yfir áhyggjum af ástandinu er soldið eins og Stefán Friðrik að blogga - tilgangslaust, augljóst öllum, og bætir nákvæmlega engu við staðreyndir málsins.

Hvernig væri nú að kalla þessa hjörð borgarfulltrúa inn á fund í Valhöll og gera þeim ljóst að:

a) Villi fær EKKI að verða borgarstjóri eftir ár

b) Enginn sexmenninganna skal fá að bjóða sig fram fyrir flokkinn eftir 2 ár

c) REI málið skal leysa strax með því að selja fyrirtækið og hætta áhættufjárfestingum með almannafé

Þá erum við að sjá eitthvað gerast.

En á meðan Þorgerður hefur bara áhyggjur, líkt og rétt tæpur helmingur kosningabærra borgara sem kjósa Sjálfstæðisflokkinn á landsvísu, gerist lítið, því Villi og hans kumpánar í borginni virðast algerlega glórulausir og í engum tengslum við lífið í landinu.

Ég, og aðrir kjósendur Sjálfstæðisflokksins, fyrirlítum Villa og sexmenningana.  Bæði fyrir það sem þetta lið hefur gert borginni, og líka það að þau hafa lagt borgina aftur í hendurnar á vinstriöflunum og það er dauðadómur yfir borginni okkar.


mbl.is Hefur áhyggjur af borgarmálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sturla og trukkurinn í auglýsingu fyrir N1 (upprifjun)

bilde?Site=XZ&Date=20080426&Category=LIFID01&ArtNo=243269982&Ref=AR&NoBorder

 

Sturla og trukkararnir eru að berjast gegn dýru bensíni.  En hann auglýsir fyrir olíufélag vegna þess (að eigin sögn) að hátt olíuverð er hreint ekki olíufélögunum að kenna, heldur Ríkisstjórninni (með stóru R-i, því Ríkisstjórnin er einn allsherjar skaðvaldur í lífi Sturlu og hans kumpána).

Skemmtileg upprifjun á tímamótum í sviðsljósi orð-óheppnasta manns landsins. 

 


mbl.is Verðhækkun hjá N1
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óljósar kröfur og smábarnafrekjuköst

Þessir trukkarar virðast ekki bera mikið skynbragð á það hvenær fólk er búið að fá nóg af þeim, nú eða hvenær þeir hafa orðið sér til fullkominnar skammar. 

Fyrst börðust þeir fyrir því að bensínálögur yrðu lækkaðar, því þær væru svo miklu hærri en alls staðar annars staðar.  Svo var þeim sýnt fram á, í mestu rólegheitum, að þær væru í raun lægri hér en víðast í kringum okkur, heimsmarkaðsverð á olíu væri um að kenna.

Þá fóru þessir snillingar til baka, en samt alveg jafn pirraðir, og fundu annað til að mótmæla.  Nú vilja þeir fá að keyra án hvíldar eins lengi og þeim sýnist.  Þá var þeim bent á að lög um hvíldartíma bílstjóra væru nú ekki aðeins settar fyrir þá, heldur fyrir okkur hin í umferðinni sem þurfum að deila vegunum með þessum mönnum, sem virðast í óðaönn að sanna að þú þarft ekki að vera sérlega vel gefinn til að fá að keyra margra tonna trukk.  Ég efast stórlega um að almenningur sé hrifinn af því að eiga það á hættu að fá svefndrukkinn trukkabílstjóra á móti sér á öfugum vegarhelmingi svona um miðja nótt.  Toyota Yaris á lítinn séns í stóran Scania trukk.

En þeim finnst þetta sjálfsögð mannréttindi sín, að stofna lífi og limum almennings í hættu.  Þeir eru jú trukkarar og svo miklar hvunndagshetjur.

Svo ákváðu þeir að lemja aðeins á löggunni, og virðast halda að bara eigi að virða sum lög en ekki önnur, og að það sé í fínu lagi að beita lögreglu ofbeldi ef þeim finnst málstaðurinn góður.  Þeir fengu svo dyggan stuðning frá drukknum menntaskólakrökkum.

Gleymum svo ekki þegar Sturla brá sér í gervi Júdasar og afneitaði vini sínum í beinni útsendingu, það hefur nú örugglega mælst vel fyrir hjá hinum vinum hans í gáfumannafélaginu Trukknum.  

Og þess á milli gaf hann sér tíma til að auglýsa fyrir olíufélag, svona mitt á milli þess sem hann mótmælti of háu bensínverði, en tók fram að hann kenndi alls ekki olíufélögum um hátt bensínverð, heldur fyrst og fremst ríkisstjórninni.

Og nú ætla þessar mannvitsbrekkur að hlamma sér á Austurvöll og mótmæla.  Mótmæla hverju, er ekki alveg ljóst.  Þeir fóru í síðustu viku mikinn og flautuðu hátt og snjallt á reðurtáknum bílum sínum fyrir framan Alþingishúsið, og uppskáru það að eyðileggja samræmt próf hjá krökkum í miðbænum sem fengu ekki frið til að taka prófið.  Bravó.

"Þetta er bara ríkisstjórnin" segir Sturla þegar á hann er gengið.  Ríkisstjórnin ber ábyrgð á öllu því sem hann er ósáttur við í sínu lífi.  Hann tók lán til að kaupa sér trukk, og nú þegar hann getur ekki borgað af láninu, þá er það einhverjum öðrum að kenna.

"Bæta kjör fólksins í landinu"?  Hvernig þá?  Eða bæta kjör afmarkaðs hóps með sérlundaðar kröfur og brenglaðar hugmyndir um eigið ágæti?  Trukkara sem telja sig vera Guðs gjöf til almennings, messíasar götunnar? Jújú, eflaust er erfitt hjá mörgum trukkurum í dag, rétt eins og hjá öðru fólki, en þegar menn hafa sýnt kjánaskap í eigin fjármálum og eru í klemmu í dag, þá er ekki hægt að hlaupa til hins opinbera og krefjast þess að fá fríspil, bara af því að lífið sé svo ósanngjarnt.   

Eitt er þó ljóst, Sturla er karakter sem hefði sómt sér vel í hvaða Radíusflugu sem er.  Svona nútíma Elli skrýtni í Eskihlíðinni.  Nú vantar bara að þessir trukkarar stormi niður á Austurvöll með kindabyssuna og fari að bryðja grjót.  Það væri samt gott, svona ef maður á að gæta sanngirni, ef einhver sem getur hugsað hálfa hugsun hjálparlaust, myndi benda þessum hópi á að þeir eru að hegða sér eins og óuppaldir og frekir smákrakkar í dótabúð fyrir jólin, og frekja og grenjuköst skila engu.  Þeir virðast ekki vera þess umkomnir að átta sig á því upp á eigin spýtur.


mbl.is Boða fólk á Austurvöll til að mótmæla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband