Rétt upp hönd

... þeir fjárfestar sem vilja láta REI passa peningana sína.  Einmitt það.  Grunaði það.  Enginn, sem sagt? 

Besta dæmið um það hversu gjörsamlega veruleikafirrtir þessir bjánar í borgarstjórn eru (allir, sama hvar í flokki þeir standa).  Þeir trúa því örugglega innilega að einhver hafi snefil af áhuga á að vinna með þeim. 

Ég myndi ekki treysta þessu liði til að segja mér rétt til um hvað klukkan er, hvað þá meira, og ég skora á alla sanna Sjálfstæðismenn að sitja heima í næstu kosningum ef þessir labbakútar bjóða sig fram aftur.

REI skal selja með húð og hári og OR á að sjá um að útvega okkur vatn og rafmagn.  Punktur.  Ekki meira.  OR á ekki að virkja, það eiga einkaaðilar að gera.  OR á ekki að byggja hitaveitu í Langtíburtistan.  Það geta einkaaðilar gert.  OR á ekki að bjóða upp á nettengingar.  Það geta einkaaðilar gert.  OR á að eiga og reka línur og pípur, og ekkert meira.  OR á ekki að vera í áhættufjárfestingum og ekki í samkeppni við einkaaðila.  Punktur.  Og þessir búálfar sem þykjast vera þess umkomnir að stjórna borginni halda annað, og þess vegna á að senda þá í pólitíska útlegð um aldur og ævi.  Og best væri ef þeir gætu tekið minnihlutann í borgarstjórn með sér.

Og að lokum vil ég hía vel og hressilega á alla Chelsea aðdáendur :)


mbl.is Sátt um REI í stjórn OR
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

"OR á ekki að bjóða upp á nettengingar.  Það geta einkaaðilar gert.  OR á að eiga og reka línur og pípur, og ekkert meira."
Hárrétt og það er akkúrat það sem OR er að gera í dóttufrélaginu Gagnaveitu Reykjavíkur. GR legggur til ljósleiðarakerfið og svo er öllum frjálst að veita þjónusturnar yfir það net og keppa sín á milli.

Omni (IP-tala skráð) 21.5.2008 kl. 22:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband