Hentistefnu-stefna Samfylkingarinnar

Nú er ţađ vitađ og alkunna ađ Samfylkingin hefur enga stefnu í neinu máli, hefur aldrei haft og mun líklegast aldrei hafa.

ESB var sko hreint ekki á dagskrá fyrir ári síđan, en er nú allt í einu orđiđ ađalmáliđ hjá spenaliggjurum kratanna.

En ţađ verđur ađ teljast nýmćli ađ nú hafi ţingmenn ţessa bráđskemmtilega flokks ólíkar skođanir eftir ţví hvar ţeir eru staddir á landinu.  Minnir óneitanlega á ţegar formađur flokksins talađi stíft GEGN álveri á Bakka ţegar hún var stödd sunnan heiđa, en um leiđ og norđur yfir Holtavörđuheiđi var komiđ STUDDI hún álver á Bakka međ ráđum og dáđ.  Og svo varđ hún aftur ANDVÍG álverinu á Bakka ţegar hún kom til baka í bćinn.  Merkilegt er vald heiđanna.

Björgvin er skemmtilegur fír.  Glórulaus međ öllu, utangátta og í alla stađi fullkomlega óhćfur í starf sitt.  Sem er samt fyndiđ á svona Monty Python legan hátt.  Hann styđur, stundum, álver í Helguvík, en stundum ekki.  Svona allt eftir ţví viđ hvern hann er ađ tala hverju sinni.  

Nú er sem sagt hin stefnulausa og ákvarđanafćlna Samfylkingin ekki lengur međ ótal skođanir á sömu hlutunum yfir einhvern tíma, heldur međ ótal skođanir á téđum hlutum á sama tíma, allt eftir ţví hvar viđkomandi ţingmađur tjáir sig um hlutinn.

Ţetta er ótrúlegt afrek hjá stjórnmálamönnum, verđ ég ađ segja.

Annars kórónar Björgvin kjánaganginn í sér ţegar hann segist ekki vera búinn ađ taka endanlega afstöđu til álvers í Helguvík.  Hann er vonandi ađ bíđa eftir enn einni skođanakönnuninni sem segir honum ađ hann má vera fylgjandi ţví í Reykjanesbć, móti á Selfossi, fylgjandi á Húsavík, en á móti í tebođi međ Össuri og Ţórunni.  Eđa kannski fylgjandi.  

Björgvin skoppar eins og korktappi í ólgusjó skođana og rćđur ekki neitt viđ neitt. 


mbl.is Ítrekuđu andstöđu viđ virkjanir
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband